Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er í hæsta máta undarlegt að hæstv. utanrrh. Íslands skuli leyfa sér í þessum ræðustól að setja samasemmerki á milli öfgasinnaðra hvalfriðunarsinna sem sökktu hér hvalbát fyrir tug ára eða guð veit hvað og þeirra umhverfisverndarsinna sem nú eru að vekja athygli á því sem er að gerast í lofthjúpi jarðar. Mér þykir það í hæsta máta undarlegt að hæstv. utanrrh. skuli geta æst sig yfir því. Og ég fullyrði að málstaður umhverfisverndarsinna sem eru að berjast í dag --- ég viðurkenni fúslega að ég tilheyri þeim hópi og er stolt af því --- er góður málstaður. Þetta er málstaður þeirra sem vilja vara við skammsýnum lausnum og það er það sem umhverfisverndarsinnar á Íslandi hafa verið að gera. Þeir vara við skammsýnum lausnum til lausnar t.d. byggðavanda og óska eftir því að okkar hreinu orkugjafar og okkar góðu virkjanir séu nýttar til annarra hluta en að selja erlendum stórfyrirtækjum raforku á útsöluverði í mengandi málmbræðslur. Það er það sem þetta snýst um.