Mörður Árnason:
Forseti. Það vekur nokkra furðu að hæstv. menntmrh. skuli kjósa að svara þessari fyrirspurn svo þurrlega sem hann gerði. Í útvarpsráði, sem sá sem hér talar situr í af hálfu hv. Alþingis, hefur þetta mál verið rætt. Við í útvarpsráði bíðum enn eftir greinargerð útvarpsstjóra og framkvæmdastjóra útvarps um þetta mál. Þó voru á sínum tíma bókuð hörð mótmæli gegn þessu, bæði mín og Kristínar Halldórsdóttur, fyrrv. alþm., sem þar situr líka.
Ég tel að með umræddum útvarpsþætti hafi morgunútvarp Rásar 2 sett ofan. Ég tel að Rás 2 hafi rýrt það traust sem ríkja á við hlustendur hennar og Ríkisútvarpið í heild hafi orðið fyrir hnjaski. Ég hef séð umræddan samninginn eða a.m.k. þann hluta samningsins sem til er á blaði í útvarpinu. Ég tel, áður en ég fæ þessa greinargerð, að um dulda kostun hafi verið að ræða. Ég vek athygli á því að það hugtak er raunar ekki til í lögum og reglugerðum. Þar eru hins vegar bannaðar duldar auglýsingar og stranglega tekið fram að auglýsingum og kostun skuli ekki blandað saman á þeim forsendum sem umræddur fréttamaður taldi upp. (Forseti hringir.) Það er rétt að spyrja hæstv. menntmrh. hvort þessi siður sem útvarpið hefur nú tekið upp sé innan þess nauðsynlega svigrúms sem hann telur að Ríkisútvarpið þurfi að fá sem hlutafélag eða einkahlutafélag.