Sturla D. Þorsteinsson:
Herra forseti. Örstutt athugasemd því að mér er málið skylt.
Hv. fyrirspyrjandi, Svanfríður Jónasdóttir, fullyrti áðan að framhaldsskólar notuðu niðurstöður til þess að velja sér nemendur. Ég er ekki alls kostar sammála þessu því að hver heimaskóli hefur raunverulega ekkert val í þessum efnum. Hann verður hvort sem honum er það ljúft eða ekki að taka við þeim nemendum sem búa á hans svæði. Hann hefur ekkert val þar.
Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir skýr svör og ég hlakka til að sjá niðurstöður úr þeim rannsóknum sem nú stendur til að framkvæma en það hlýtur að vera óskaplega erfitt að meta alla þessa hluti sem hæstv. ráðherra taldi hér upp áðan.