Árni Gunnarsson:
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að hefja máls á þessu og ég þakka hæstv. iðn.- og viðskrh. fyrir skýr og góð svör. Ég vil benda á að unnin hefur verið þó nokkur vinna í þessum málum. Það er mér sérstakt ánægjuefni að þakka Landssíma Íslands fyrir að lækka t.d. verð á leigulínum út á land. Jafnframt er það tímamótaverk sem var samþykkt á Alþingi, þ.e. þáltill. um byggðamál, og ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli eiga að taka við þessum málaflokki því að hann hefur sýnt það í verki að hann er duglegur og kraftmikill og þessum málum er vel fyrir komið hjá honum.
Ég legg áherslu á að þessir hlutir verða að gerast hratt því að fólk úti á landi bíður eftir því að viljinn verði sýndur í verki. Ég vil undirstrika að það að sýna viljann í verki af hálfu stjórnvalda hefur mikil áhrif á byggðaþróun í landinu. Ég fullyrði það.