Tilkynning um dagskrá

Fimmtudaginn 04. nóvember 1999, kl. 10:32:34 (1108)

1999-11-04 10:32:34# 125. lþ. 20.92 fundur 122#B tilkynning um dagskrá#, Forseti ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 125. lþ.

[10:32]

Forseti (Árni Steinar Jóhannsson):

Forseti vill geta þess að hann áformar að kosningar og e.t.v. atkvæðagreiðslur fari fram í dag kl. hálftvö að loknu hádegishléi.

Klukkan fjögur síðdegis fer fram umræða utan dagskrár um málefni Lánasjóðs ísl. námsmanna. Málshefjandi er hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson.