Rannsókn kjörbréfs

Miðvikudaginn 10. nóvember 1999, kl. 13:34:08 (1198)

1999-11-10 13:34:08# 125. lþ. 21.1 fundur 125#B rannsókn kjörbréfs#, EKG
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 125. lþ.

[13:34]

Einar K. Guðfinnsson:

Virðulegi forseti. Kjörbréfanefnd hefur fjallað um kjörbréf 2. varaþingmanns Frjálslynda flokksins á Vestfjörðum, Bergljótar Halldórsdóttur, sem landskjörstjórn gaf út 2. nóvember sl., en 1. varaþingmaður flokksins í kjördæminu, Pétur Bjarnason, getur ekki tekið sæti að þessu sinni sökum forfalla.

Nefndin hefur kynnt sér kjörbréfið og ekki fundið neitt athugavert og leggur til að það verði samþykkt.