Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir þann mikla áhuga sem þeir sýna á löggæslumálum og tækjaútbúnaði sem þarf að vera í lagi. Eins og ég sagði áðan þá er verið að vinna að endurnýjun bílaflota lögreglunnar. Fjárveitingar til þessa málaflokks hafa verið af heldur skornum skammti hingað til en þó hefur okkur miðað nokkuð í rétta átt á síðustu árum. T.d. hafa 22 lögreglubílar verið endurnýjaðir það sem af er þessu ári.
Því má að lokum bæta við að ákveðið hefur verið að ráðast í heildarendurskipulagningu á bílamálum lögreglunnar. Í því felst að frá 1. janúar næstkomandi verður öll umsýsla lögreglubifreiða á hendi ríkislögreglustjórans en ekki hjá einstökum lögregluembættum eins og áður. En ég vil taka það fram vegna fyrirspurnar hv. þm. Ögmundar Jónassonar að ég er viss um að lögreglumenn sinna sínum störfum af fyllstu samviskusemi og kostgæfni og nota að sjálfsögðu til þess öll þau tæki sem til þarf.
Hv. þm. Jón Bjarnason spurði hvort leigan yrði mismunandi eftir því hvar bílarnir væru staðsettir úti á landi. Mér er ekki kunnugt um að svo sé.