Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi tvö frv. verði rædd saman. Ég tek undir með hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur sem óskaði eftir frestun á þessu máli.
Virðulegi forseti. Hér er fram undan umræða um þá umgjörð sem væntanleg upplýsingabylting mun þurfa að þróast innan. Ég tel mjög mikilvægt að samhliða verði rætt um hvernig eftirliti með starfseminni verði háttað en að því mun frv. um Póst- og fjarskiptastofnun væntanlega lúta.
Þá vil ég, virðulegi forseti, vekja á því athygli að sú vinna sem fram undan er mun væntanlega fara fram undir forustu formanns samgn. sem samkvæmt mínum upplýsingum er staddur erlendis. Það eru, virðulegi forseti, alla vega þær upplýsingar sem ég fékk á skrifstofu Alþingis í morgun, að hv. formaður samgn. sé staddur erlendis. Hann hefur a.m.k. fjarvistarleyfi. Ég tel því mikilvægt ef umræðan á að fara fram að hv. þm. sé viðstaddur þá umræðu. Ég held að annað sé alveg fráleitt.