Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Það er alltaf gott að vera bjartsýnn og mér fannst hv. þm. vera það þegar hann ræddi blessuð barnakortin. En mér fannst hann ekki hafa hlustað grannt á formann sinn á miðstjórnarfundinum. Kannski hefur hann áhyggjur af svari hv. fjmrh. sem vitnar í stjórnarsáttmálann þar sem mjög óljóst orðalag er um barnakortin og sagt að gert sé ráð fyrir að unnið verði að þessu markmiði á kjörtímabilinu. Ég vil spyrja hv. þm. hvort hann telji það ekki úrslitaatriði af hálfu framsóknarmanna að þegar í stað og ekki síðar en á næsta ári verði ráðist í að koma þessum barnakortum til framkvæmda. Ég verð að segja að mér finnst það óviðunandi fyrir hönd Framsfl. ef þetta á að bíða og sitja á hakanum þar til kannski undir lok kjörtímabilsins. Mér finnst þetta vera svo stórt mál að ráðast í breytingar á barnabótakerfinu almennt. Ég er ekkert að segja að barnakortin séu hin eina og sanna rétta leið heldur það að ráðast í að draga úr og helst fella niður þessa tekjutengingu. Það hlýtur að vera óviðunandi fyrir framsóknarmenn og þeim hlýtur að líða mjög illa meðan málið er í jafnmikilli þoku og það er í samstarfi þessara flokka. Það er greinilegt að þessu orði, barnakort, hefur verið þröngvað inn í stjórnarsáttmálann og ef ég þekki Sjálfstfl. rétt verður þetta mjög erfitt mál fyrir Framsfl. Það hlýtur að vera óviðunandi fyrir unga framsóknarmenn ef þetta verður algjörlega látið sitja á hakanum eða reynt að koma þessu einhvern veginn inn í kjarasamninga, en því hefur verkalýðshreyfingin þegar lagst gegn.