Heimasíða "Hraunals" um álverið á Reyðarfirði

Mánudaginn 15. nóvember 1999, kl. 15:07:48 (1385)

1999-11-15 15:07:48# 125. lþ. 25.1 fundur 139#B heimasíða "Hraunals" um álverið á Reyðarfirði# (óundirbúin fsp.), umhvrh.
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 125. lþ.

[15:07]

Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):

Virðulegur forseti. Ég tel að ég hafi ekki forsendur til að kveða upp úr um það. Ef það er rétt sem hér kom fram að þetta sé svona flókið er væntanlega tiltölulega erfitt að nálgast þessi gögn. En ég get ekki kveðið upp úr um það hér og nú hvort það sé eðlilegt að lengja frestinn eða ekki.