Verðbætur á gjaldahlið vegamála árið 2000

Mánudaginn 15. nóvember 1999, kl. 15:26:32 (1403)

1999-11-15 15:26:32# 125. lþ. 25.1 fundur 143#B verðbætur á gjaldahlið vegamála árið 2000# (óundirbúin fsp.), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 125. lþ.

[15:26]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég fæ ekki með nokkru móti séð hvernig þingmaðurinn getur lagt þennan skilning í það sem ég sagði. Ég sagði ekki þetta. Ég sagði að við mundum athuga málið, værum að skoða þetta mál, reyna að komast til botns í því og það er nákvæmlega það sem verið er að gera. Hver niðurstaðan úr því verður verður auðvitað upplýst þegar þar að kemur. En það er ekki hægt að hrapa að niðurstöðum eins og þingmaðurinn gerði hér í máli sínu.