Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég lít svo á að flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga sé byggðastefna í raun og ágæt byggðapólitík og geri verkefni unnin í sveitarfélögunum fjölbreyttari og það sé af hinu góða.
Hitt er svo annað mál að sveitarfélögin og bæði umboðsmenn ríkisvalds og sveitarfélaga verða auðvitað að kunna sér hóf í sínum metnaði. Það er mjög einfalt að leggja meiri metnað í og það hefur komið í ljós, ekki í þessu reynslusveitarfélagaverkefni sérstaklega. Það er meira áberandi með grunnskólann, þ.e. að sveitarfélögin hafa gert miklu meira en þeim bar lögum samkvæmt og heldur en samningurinn hljóðaði upp á. Það hefur verið reiknað út af Sambandi ísl. sveitarfélaga að sveitarfélögin hafa fengið á fjórum árum milljarði meira en um var samið í meðlag með grunnskólanum. Samt eru til sveitarfélög sem kvarta mjög yfir því að þeir peningar sem þau fengu með verkefninu dugi ekki til þess að kosta það vegna þess að þau leggja í það meiri metnað en ríkið gerði á sínum tíma.
Varðandi heilsugæslu sérstaklega þá fer dálítið tvennum sögum af henni. Hornafjörður er það sveitarfélag sem tekið hefur best, að mínu mati, á reynslusveitarfélagaverkefninu. Þeir eru með nokkrar tilraunir í gangi og allar takast vel. Ég veit ekki betur en það sé mjög mikil ánægja með það skipulag sem þeir hafa komið upp á samþættingu heilsugæslu, félagsþjónustu og öldrunarþjónustu.