Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir) (andsvar):
Virðulegur forseti. Já, mér þykir virðingarvert að við skulum leggja hér fram sérstaka þáltill. til að þingheimur fái tækifæri til að endurskoða hug sinn. Ég held að hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni veiti ekki af slíkri endurskoðun. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon samþykkti þessa virkjun hér áður fyrr.
Hv. þm. sagði að ég hefði ekki minnst á skoðanir forvera míns, Guðmundar Bjarnasonar, þáverandi umhvrh. Það er rétt og jafnframt það sem hér kom fram áður að hann sagði opinberlega að hann teldi að þessi virkjun ætti að fara í lögformlegt umhverfismat. En hún er ekki í lögformlegu umhverfismati, alls ekki. Hvað varð um þessar skoðanir? Þær náðu ekki fram að ganga.
Hins vegar sagði ég: Þann 10. maí 1999 staðfesti umhvrh. svæðisskipulag miðhálendis Íslands til 2015 og staðfesti þar með álit samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendis Íslands og Skipulagsstofnunar, að Fljótsdalsvirkjun sé heimiluð með lögum frá árinu 1981 og að leyfi ráðherra hafi verið veitt fyrir virkjuninni fyrir 1. maí 1994. Þetta staðfesti fyrrv. umhvrh. Ég ætla því rétt að vona að þetta sé mjög skýrt fyrir hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni þegar hann dregur fyrrv. umhvrh. inn í þessa umræðu.
Ég skil mætavel að hv. þm. sé gapandi hissa yfir því að ég taki afstöðu með ríkisstjórninni. Ég skil það í ljósi alls málflutnings hans. Sá málflutningur er bara hringavitleysa. Að sjálfsögðu styð ég málflutning ríkisstjórnarinnar í þessu efni. Hvaða málstað ætti ég annars að styðja? (Gripið fram í: Eigin sannfæringu.) (Gripið fram í.) Eins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon gerði á sínum tíma.