Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Ég vona að ég hafi misskilið hv. þm. og ef svo er, þá er það hið besta mál. En ég vil velta því upp hver kunni að vera skýringin á því að yfirgnæfandi meiri hluti íslensku þjóðarinnar vill að Fljótsdalsvirkjun fari í lögformlegt umhverfismat. Hver er skýring á því að yfirgnæfandi meiri hluti Íslendinga krefst þess að Fljótsdalsvirkjun fari í lögformlegt umhverfismat? Ég held að skýringin sé sú að fólk vilji vönduð vinnubrögð. Fólk vill tryggja vönduð vinnubrögð. Fólk vill í fyrsta lagi að farið sé að landslögum en fólk vill að menn vandi til verkanna í þessu efni og hrapi ekki að niðurstöðum. Þetta held ég að sé skýringin á því að yfirgnæfandi meiri hluti Íslendinga, þrír fjórðu hlutar þjóðarinnar, krefjast þess að Fljótsdalsvirkjun fari í lögformlegt umhverfismat.