Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 21:41:37 (1580)

1999-11-16 21:41:37# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[21:41]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Herra forseti. Það hlýtur að skipta landsbyggðina afar miklu máli að fá fjölbreytni í atvinnulífið þannig að það styrki byggðina í landinu. Þegar samið var um friðun Þjórsárvera þá voru menn að búa til stefnu til framtíðar. Menn verða einfaldlega að geta treyst því sem samið er um.