Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 21:55:40 (1589)

1999-11-16 21:55:40# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[21:55]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Sanngjörn framganga í þessu máli er að fara að hafa sig af stað og virkja. Það er svo einfalt mál. Það er fyrir löngu búið að taka allar ákvarðanir og færi málið t.d. fyrir dómstóla, þá er ég alveg viss um að niðurstaðan yrði einhlít, virkjun í vil og ákvörðunum stjórnvalda.