Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 22:01:16 (1594)

1999-11-16 22:01:16# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[22:01]

Jóhann Ársælsson (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel svo sem ekki miklu við þetta að bæta. Mér finnst að hv. þm. hafi sjálfur rökstutt sig frá þessu máli. Ég held að þjóðin hafi fullkomlega vit á ósk sinni um að lögformlegt umhverfismat fari fram. Þjóðin þarf ekki að vita nákvæmlega hvað í því felst. Þess vegna held ég að menn ættu að bera virðingu fyrir þeirri niðurstöðu. Menn eiga ekki að taka mark á sumum skoðanakönnunum en ekki öðrum.