Beiðni um fundarhlé

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 13:54:54 (1618)

1999-11-17 13:54:54# 125. lþ. 27.93 fundur 156#B beiðni um fundarhlé# (um fundarstjórn), SighB
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[13:54]

Sighvatur Björgvinsson:

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að spyrja hæstv. forseta um hver sé fyrsti forseti Alþingis. En ég ætla að spyrja hæstv. forseta að því hvenær hann hyggst koma umræddum tilmælum á framfæri við þann forseta Alþingis sem hann kallar fyrsta forseta og hvenær megi búast við svari og hver muni gefa það svar.