Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 14:37:29 (1629)

1999-11-17 14:37:29# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[14:37]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Það skyldi þó aldrei vera gagnstætt, þ.e. að menn berjist gegn þessari framkvæmd vegna þess að þeir beri hlýjar tilfinningar til Austfirðinga og vilji taka á íslenskum efnahagsmálum á ábyrgan hátt. Það er þess vegna sem við erum að setja fram þessar miklu efasemdir og mótmæli gegn því að ráðist verði í þessar framkvæmdir.