Kristján L. Möller (andsvar):
Herra forseti. Ég man nú ekki hvenær hv. þm. Ísólfur Gylfi Pálmason sneri sig síðast á fæti í fótboltaleik en það er annar handleggur. Marktækifærið sem hann talar um að sé núna fyrir hendi er 20% þátttaka Norsk Hydro í þessu stóra verki. Ég er ekki sammála því að Norsk Hydro, sem ætlar að eiga um 20% í þessu fyrirtæki, geti stillt Alþingi og Íslendingum upp við vegg og sagt: Ef þið gerið þetta ekki núna þá gerist ekkert.