Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 15:30:57 (1648)

1999-11-17 15:30:57# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÍGP (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[15:30]

Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Einar Már Sigurðarson var mun afdráttarlausari í afstöðu sinni. Ég veit að skoðanir þessara tveggja hv. þm. fara saman. Hann segir ekki ,,það hefði verið gott,`` heldur segir hann: Við skulum, við skulum! Ég er ekki frá því, af því að hv. þm. hefur gjarnan talað um sálfræðinámskeið framsóknarmanna, að hann, þessi gamli krati, hafi eitthvað ruglast í ríminu þegar hann fór á þerapíunámskeið hjá Samfylkingunni nú í haust.