Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 18:59:20 (1681)

1999-11-17 18:59:20# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[18:59]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að í öllum málum sem koma til mats samkvæmt lögunum um mat á umhverfisáhrifum þá gefi menn sér ekkert fyrir fram í þeim efnum. Eins og allir vita taka lögin ekki aðeins til náttúrufars heldur líka til byggðar, mannlífs og annarra þátta og er það vel. Reyndar eru þessi lög gölluð, eins og vitum öll hér. Frá hæstv. umhvrh. eru væntanleg ný lög og þau munu taka betur á þessu.

Að sjálfsögðu gefur maður sér niðurstöðuna ekki fyrir fram.