Einar Már Sigurðarson (andsvar):
Herra forseti. Ég fékk ekki svar við spurningu minni en ég vona svo sannarlega að hv. þm. sjái til þess að almenningur hafi möguleika á því að koma athugasemdum sínum á framfæri þó ekki sé nema í gegnum almannasamtök sem mörg hver hafa verið stofnuð á síðustu mánuðum og árum og hafa þar af leiðandi möguleika á því að koma athugasemdum sínum á framfæri.
Hins vegar er ljóst og ég get tekið undir það með hv. þm. að að sjálfsögðu er þetta ekki hin sama regla og gert er ráð fyrir í lögum um mat á umhverfisáhrifum. Hins vegar, vegna þess að mér fannst hv. þm. gefa í skyn að hér væri ekki farið að leikreglum eins og það var orðað, þá taldi ég hann gefa til kynna að hér væri ekki að fullu farið að lögum. En eins og margoft hefur komið fram í umræðum hafa flestir talið að öll lagaákvæði væru til staðar varðandi það mál sem hér er til umræðu.