Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:32:49 (1702)

1999-11-17 19:32:49# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:32]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég á náttúrlega ekki slíkt sparifé í erminni eins og sumir fjármálamenn víða eiga. Ég benti hins vegar á að gert er ráð fyrir að stór hluti þessarar fjármögnunar komi frá innlendum fjárfestum og talað hefur verið um að hálfopinberir sjóðir kæmu þar að, meira og minna.

En ég lýsi eftir stuðningi hv. þm. við þessa þáltill. okkar, Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs. Það er byggðaáætlun.