Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:33:38 (1703)

1999-11-17 19:33:38# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:33]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég styð allar góðar tillögur í byggðamálum og hef lengi gert. Hitt er annað mál að þeir fjárfestar sem leggja ætla fé í þessar framkvæmdir hafa ekki séð aðra kosti til að leggja fé í framfaramál á Austurlandi. Ef hv. þm. veit um aðra fjárfesta sem eru tilbúnir að leggja 60 milljarða í aðrar fjárfestingar á Austurlandi, þá væri mjög gott að fá fréttir af þeim.