Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:38:36 (1708)

1999-11-17 19:38:36# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:38]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það hjá hv. þm. og vona að hann beri það inn í stjórnarherbúðirnar að það verði ekki farið í neinar slíkar framkvæmdir fyrr en ljóst er að arður verði af þeim, þær verði ekki til tjóns, hvorki fyrir náttúru né samfélag. Við skulum vera sammála um að framkvæmdir eigi að bera arð, fjárhagslega og samfélagslega. (EOK: Ætlarðu að styðja málið?)