Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:40:09 (1710)

1999-11-17 19:40:09# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:40]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég harma að hv. þm. hefur ekki hlustað á ræðu mína. Ég lýsti mig fylgjandi því að veitt yrði fjármagn til Austfirðinga. Í svona stuttri ræðu er hins vegar ekki hægt að taka fyrir nema afmarkaða þætti. Ég lýsti yfir miklum og einlægum stuðningi við að fjármagn færi á Austurland en dró í efa að þetta væri besti kosturinn, að þurfa að standa frammi fyrir þessu einu og engu öðru.