Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:41:34 (1712)

1999-11-17 19:41:34# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:41]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég hef mikla trú á bæði hugviti og frumkvæði Austfirðinga. Ég vildi svo gjarnan að þeir fengju aukin tækifæri til að taka þátt í og meta þá valkosti sem þeir standa frammi fyrir. En aðgerðum í byggðamálum verður að fylgja pólitísk stefna, ekki bara fyrir eitt fyrirtæki á Austurlandi. Þessu máli fylgir engin stefna, það þarf eftirfylgni á fleiri sviðum en í formi steinsteypu og stíflu.