Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 22:19:32 (1739)

1999-11-17 22:19:32# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, HBl (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[22:19]

Halldór Blöndal (um fundarstjórn):

Herra forseti. Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri það í þingsölum að verið sé að bera á mann sakir og reyna að draga úr virðingu þingmanns með því að vitna til úrskurðar sem viðkomandi hv. þm. gaf sem ráðherra. Ég er að minna á verk hans á hlutlausan og hógværan hátt en það eiga svo að heita svívirðingar.