Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Ég kveð mér hér hljóðs til að bera af mér sakir. Hv. 1. þm. Norðurl. e. bar mig eiginlega þremur sökum og stafa sennilega tvær hinar fyrri af því að honum er málið gersamlega ókunnugt. Hann sagði í ræðum sínum hér áðan að ég hefði gefið framkvæmdaleyfi fyrir Fljótsdalsvirkjun og síðan gefið virkjunarleyfi, hvort tveggja er auðvitað rangt. Síðan sagði hann að ég hefði gefið leyfi fyrir, herra forseti, að ég hefði gefið leyfi fyrir Fljótsdalslínu.
Þá er rétt að fara yfir hvernig það mál var, herra forseti. Árið 1991 eða 1992 var gerð tillaga að svokallaðri Fljótsdalslínu. Um hana höfðu verið miklar deilur en skipulagsmeðferðinni allri var lokið árið 1992, ári áður en ég kom í umhvrn. Árið 1994, að öllum líkindum, var komið með þetta til staðfstingar í ráðuneytinu og skipulagsstjóri mælti með því að skipulag línunnar yrði staðfest. Ákveðinn hluti línunnar, sem lá frá Akureyri að Veggjafelli, var algjörlega óumdeildur. Um hann var fjallað sérstaklega í nefnd þar sem allir þingflokkar áttu fulltrúa, m.a. Hjörleifur Guttormsson. Það var búið að fjalla um þennan hluta línunnar í Náttúruverndarráði og enginn gerði athugasemdir við hann.
Herra forseti. Hins vegar stóðu miklar deilur um seinni hluta línunnar. Og hvað gerði ég? Ég staðfesti þann hluta línunnar sem engar deilur voru um. Hvað gerði ég við restina, herra forseti? Ég gaf þau fyrirmæli að hin nýja tillaga, þ.e. af austurhluta línunnar sem eftir var, mundi hljóta umfjöllun samkvæmt lögum, þar á meðal lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993.
Herra forseti. Það sem ég gerði og hv. þm. veit greinilega ekkert um var að ég tók þann hluta línunnar sem umdeildur var og beindi honum í umhverfismat. (Gripið fram í: Af hverju ekki alla?) Það voru engar deilur. Allir voru sammála um restina. Það voru allir sammála um þennan hluta frá Akureyri að Veggjafelli, og ég staðfesti hann, en sá hluti sem deilur stóðu um var settur í umhverfismat. Eina ályktunin sem menn geta dregið af því í sambandi við þetta er að auðvitað hefði þessi ríkisstjórn átt að fara nákvæmlega eins að, taka það sem umdeilt er og setja það að sjálfsögðu í umhverfismat.