Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. Einar Már Sigurðarson segir að annars vegar vegist á náttúruverndarsjónarmið og hins vegar atvinnu- og byggðasjónarmið. Að mínum dómi er málið ekki svona einfalt vegna þess að menn greinir á um hvort hér sé í reynd hyggileg byggðastefna á ferðinni. Ég tel að mjög margt bendi til þess að þetta sé ekki aðeins vanhugsað heldur mjög varhugavert. Menn eru að setja allt of mörg egg í eina körfu.
Hefur hv. þm. Einar Már Sigurðarson engar áhyggjur af því að fram undan blasir við okkur sú mynd, ef þessi áform verða að veruleika, að fjórði hver vinnandi maður á Austfjörðum starfar í álveri eða í atvinnustarfsemi henni tengdri? Og er hv. þm. kunnugt um að jafnvel álver geta lagt upp laupana?