Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 16:41:44 (1915)

1999-11-18 16:41:44# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, EMS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[16:41]

Einar Már Sigurðarson (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. tekur hér upp mál sem ég benti á að mér þætti vera veikleiki í skýrslunni og lagði þess vegna mikla áherslu á að hv. umhvn. færi vandlega yfir það mál og skoðaði vel hvernig hægt væri að bæta fyrir og leitað yrði bestu lausnar sem hægt væri í þeim efnum. Ég vona, herra forseti, þar sem hv. þm. á sæti í nefndinni að hv. þm. leggi sig alla fram við að gera sem best úr þessu máli þannig að þessi þáttur verði sem sterkastur þegar upp verður staðið.