Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 16:42:28 (1916)

1999-11-18 16:42:28# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, KF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[16:42]

Katrín Fjeldsted (andsvar):

Herra forseti. Þá vil ég hryggja þingmanninn og þingheim allan með því að ég tel mjög ólíklegt að umhvn. takist að finna land til að bæta þennan skaða. Það er ein af ástæðum þess að mér finnst mjög mikilvægt að fram fari mat á umhverfisáhrifum, eins og ég hef margskýrt.