Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 16:42:53 (1917)

1999-11-18 16:42:53# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, EMS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[16:42]

Einar Már Sigurðarson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli hv. þm. á því, svo að hv. umhvn. geti leitað til ýmissa stofnana sér til aðstoðar, að á sömu blaðsíðu í títtnefndri skýrslu segir, með leyfi forseta:

,,Verður það gert í samvinnu við Landgræðslu ríkisins, Skógrækt ríkisins, Náttúruvernd ríkisins, sveitarstjórn Fljótsdalshrepps og e.t.v. fleiri aðila.``

Herra forseti. Ég vona að umhvn. leiti til allra þeirra aðila sem geta orðið nefndinni til aðstoðar í þessu máli.