Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 17:11:42 (1933)

1999-11-18 17:11:42# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[17:11]

Jón Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Auðvitað er það alveg ósambærilegt. Ég gæti svarað því ef ég hefði lengri tíma til að bera saman orkusölu til stóriðju og orkusölu á almennan markað. Það er ólíkt þegar orkan er afhent við stöðvarvegg á orkuveri til álverksmiðju eins og er hér t.d. í Straumsvík og hefur verið um árabil. Þetta er algjörlega ósambærilegt en þennan blekkingaleik er búið að leika í áraraðir. Til hans er alltaf gripið þegar í harðbakkann slær.