Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég skil alveg hvað hv. þm. er að fara. Hún vildi bara fína kynningu frá forsn. En hún vill ekki kynningu þar sem menn geta séð að það á að nota síðuna til einhverra ákveðinna hluta, til að fjalla um ákveðið mál sem er hjá nefndinni. Forsn. hefði átt að kynna síðurnar með einhverju huggulegu boði og tala almennt um þær. En þarna er heimasíðan kynnt á ákveðnu augnabliki þannig að fólk viti að það getur notað síðuna til að koma á framfæri umsögnum sínum um ákveðið mál. Það er þetta sem ég skil ekki.