Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Hæstv. landbrh. sagði að úrskurði um forkaupsrétt hefði verið hafnað með vísan til eignarréttarákvæða stjórnarskrárinnar. Er hæstv. landbrh. þar með að segja að jarðalögin brjóti í bága við stjórnarskrána?
Í öðru lagi sagði hæstv. landbrh. að hann væri að vinna að breytingum á jarðalögum. Nú vil ég spyrja hann: Hverjir vinna að þeim breytingum? Eru það bændur sjálfir eða fulltrúar bænda, bændasamtök og aðrir slíkir? Ég geri mikinn mun þar á og bendi á að svokallaðir fulltrúar bænda í bændasamtökunum hafa t.d. lífeyrisréttindi eins og opinberir starfsmenn en eru ekki með sambærilegan rétt og bændur sjálfir hafa. Þeir eru komnir ákaflega langt frá umbjóðendum sínum, þeim sem þeir eiga að gæta hagsmuna fyrir. Ég vil benda hæstv. landbrh. á að reyna að gæta hagsmuna hins einstaka bónda. Staða bænda er ekkert sérstaklega góð í kjölfar áratuga ofstjórnunar í landbúnaði.