Seðlabanki Íslands

Fimmtudaginn 02. desember 1999, kl. 14:16:29 (2185)

1999-12-02 14:16:29# 125. lþ. 34.2 fundur 214. mál: #A Seðlabanki Íslands# (breyting ýmissa laga, yfirstjórn) frv. 103/1999, forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur, 125. lþ.

[14:16]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég var ekki að segja ákveðið fyrir um að það yrði endilega viðskrh. sem færi með ráðninguna, ég var að gera ráð fyrir því að það gæti orðið. Ég geri ekki mun á því í hvers hlut það kemur, en staðan verður auglýst mjög fljótlega og ef það næst ekki að viðskrh. klári málið mun það koma í hlut forsrh. að klára það mál.