Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. forsrh. áðan er samkomulag milli stjórnarflokkanna um að þrír bankastjórar verði starfandi við bankann og það birtist og er undirstrikað í því frv. sem hér liggur fyrir. Það hefur áður gerst að dregist hafi að skipaður væri bankastjóri við bankann. Það er ekki til sérstakrar eftirbreytni en þær aðstæður geta verið uppi að það taki tíma að ganga frá slíkum hlutum. Það hefur reyndar dregist óvenjulengi að þessu sinni. Margar ástæður liggja þar að baki sem ég sé ekki ástæðu til að tíunda hér sérstaklega. Hins vegar liggur líka fyrir að á næstu dögum mun verða gengið frá því að staðan verði auglýst og það skiptir þá ekki höfuðmáli hvort það verður viðskhrh. eða forsrh. sem skipar í stöðuna, ætli það verði ekki að ráðast svolítið af því hvernig framvinda þessa máls verður í þinginu, og ef hv. þm. leggur mikla áherslu á að það verði forsrh. sem það muni gera, þá væri ágætt að hraða málinu í gegnum þingið.