Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég tek alveg heils hugar undir það með hv. þm. Pétri H. Blöndal að mjög margir kostir eru við það að búa úti á landi og ég heyri að hann gæti jafnvel íhugað að flytja þangað ef vegirnir væru góðir og hann gæti alltaf fengið nýtt kjöt. Það væri nú hægt að sjá til þess. En það eru ákveðnir grunnþættir sem við viljum þó eiga hliðstæðan aðgang að, heilbrigðisþjónustu, menntun og samgöngum.
Ég skil orð hans svo, eins og hefur komið fyrr fram í umræðunni, að sennilega væri bara rétt að festa það með lögum að allir skuli hafa góða vegi og við sameinumst um það.