Fjáröflun til vegagerðar

Föstudaginn 03. desember 1999, kl. 11:57:56 (2233)

1999-12-03 11:57:56# 125. lþ. 35.10 fundur 223. mál: #A fjáröflun til vegagerðar# (afsláttur af þungaskatti) frv. 31/2000, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur, 125. lþ.

[11:57]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Pétur H. Blöndal setur málið aðeins á dreif. Ég tel ekki að Ísafjörður, Siglufjörður Þórshöfn, Akureyri, Raufarhöfn séu slíkir afdalabæir að ekki sé á stefnuskrá okkar allra og þjóðarinnar að koma góðum vegum til þeirra. Ég mótmæli því að þetta séu einhverjir afdalir og vil alls ekki tala illa um neina afdali. Það eru hugarfarslegir afdalir hjá hv. þm. sem geta verið erfiðastir við að fást í þessum efnum og það á kannski við víða um þjóðfélagið í heild sinni.