Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þm. að málið ber tiltölulega brátt að og kemur inn í þingið með litlum fyrirvara. Ekki ætla ég að segja að það hafi gengið svona nákvæmlega fyrir sig á þeim fundi sem hv. þm. setti á svið þegar þeir ráðherrar sem fara með einkavæðingarmálin hafi hist, að þeim hafi allt í einu dottið í hug að nú væri rétt að setja bréf á markað. Það lá hins vegar fyrir að framboðið er takmarkað og þess vegna töldu menn með tiltölulega skömmum fyrirvara að skynsamlegt væri að nýta það svigrúm til að fá sem hæst verð fyrir þessi bréf.
Það sem ég átti við með lítilli fjárbindingu var að menn gætu núna farið úr ákveðnu sparnaðarformi sem menn eru kannski með peningana sína í yfir í annað þar sem þeir telja að þeir fái meiri arð og horfi á þetta sem langtímafjárfestingu í ljósi þess að nýta skattafsláttinn í þeim efnum.
Varðandi dreifðu eignaraðildina þá er engin breyting á afstöðu manna í þeim efnum. Viðræður eru í gangi og vinna í viðskrn. Ég hef leitað leiða í þeim efnum, kannað hvernig þeim hlutum er fyrir komið hjá öðrum þjóðum. Forsrh. heldur því mjög vel til haga og ég veit að hann er mjög einarður stuðningsmaður þess að farið verði í slíkt. Við erum að vega og meta hvað það þýðir og það eru hlutir sem munu verða teknir til frekari umfjöllunar í ríkisstjórn.
Hv. þm. þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þetta sé undirbúningur að einhverri frekari sameiningu banka á markaði. Þetta gengur þvert í þá átt. Það er verið að gefa fleirum tækifæri til að koma að. Ég vil hins vegar ekki útiloka að það geti gerst, en hef sagt að þau skilaboð vil ég að komi frá markaðnum. Ég ætla ekki að leggja línur í þeim efnum.