Frsm. menntmn. (Sigríður A. Þórðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég þóttist heyra að hv. síðasta ræðumaður hafi haldið því fram að þetta frv. kæmi eingöngu þeim nemendum til góða sem vel standa í námi. (Gripið fram í.) Það hefur kannski verið misheyrn hjá mér en ég vildi reyndar halda því fram að þetta frv. kæmi líka til góða þeim nemendum sem standa höllum fæti. Þeir hafa verið neyddir til að fara í samræmd próf hvort sem þeir hafa nokkra getu til þess eða ekki. Í þessu frv. er því komið til móts við þá nemendur. Oft hefur verið mjög erfitt fyrir nemendur sem standa höllum fæti í skólakerfinu að þurfa að fara í gegnum samræmd próf og að því leyti tel ég að þetta sé afskaplega jákvætt skref, að gera samræmdu prófin valkvæð.
Ég vil hnykkja sérstaklega á því að gert er ráð fyrir því að 30% af kennslutímanum geti verið valfrjáls í 9. og 10. bekk. Það er ekki skylda. Það er sem sagt gert ráð fyrir að hægt sé að hafa allt að 30% af kennslutímanum valfrjálsan.
Þar sem hv. þm. fjallaði frekar neikvætt um yfirfærslu grunnskólans, að mér fannst, vil ég segja að mér finnst sveitarfélögin hafa tekið af miklum metnaði á málefnum grunnskólans. Ég er alls ekki sammála því að lítil sveitarfélög séu í vandræðum með einsetninguna. Þvert á móti voru mörg þeirra fyrir löngu búin að einsetja grunnskóla sína áður en grunnskólalögin voru sett árið 1995. Þetta er kannski fyrst og fremst vandamál hjá stærri sveitarfélögunum þar sem fólksfjölgunin er mest.