Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Mér er fullkunnugt um að hv. formaður menntmn. veit meira um yfirtöku sveitarfélaganna á skólamálunum heldur en ég. Ég beygi mig alveg fyrir því. Hins vegar var ég, eins og ég sagði áðan, virðulegi forseti, efins á sínum tíma. Ég kann ekki að fara nægilega vel út í þau tæknilegu atriði og læt því staðar numið um þau mál.
Varðandi þau börn sem eiga örðugt með nám þá held ég að við þurfum ekki að eyða fleiri orðum á að við berum öll hag nemenda í grunnskólanum fyrir brjósti. Ég held að það sé alveg rétt sem fram hefur komið í þessum umræðum hjá okkur þremur sem hér höfum talað að þessu máli verði fylgt eftir í hv. menntmn. Um það munu skapast umræður sem vonandi leiða af sér aukna námsráðgjöf og á endanum það sem við öll stefnum að, betri grunnskóla.