Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég fagna því að hv. þm. vill standa vörð um heilbrigðiskerfið. Það gerum við saman. Ég vona að hann geri það í anda hinnar vestfirsku samhjálpar en ekki amerískra aðferða eða thatcherisma. Ég vona að í þeim aðgerðum sem farið verður út í þá stöndum við saman um það, herra forseti.