Fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna

Þriðjudaginn 07. desember 1999, kl. 22:50:48 (2485)

1999-12-07 22:50:48# 125. lþ. 37.5 fundur 206. mál: #A fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna# þál. 6/125, ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 125. lþ.

[22:50]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. þessa ábendingu og vil bara ítreka það hér að farið verði mjög vandlega einmitt yfir efnisatriði Evrópusamningsins um vernd persónuupplýsinga. Ég vil reyndar taka það fram að aldrei er of varlega farið í þeim efnum. En ég treysti því að þetta atriði eins og önnur í þessum samningi fái vandlega umfjöllun.