Fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna

Þriðjudaginn 07. desember 1999, kl. 22:52:54 (2487)

1999-12-07 22:52:54# 125. lþ. 37.5 fundur 206. mál: #A fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna# þál. 6/125, ÞSveinb (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 125. lþ.

[22:52]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svörin. Ég hygg að gerðar verði athugasemdir við gildistökuákvæðið í hv. allshn. Eins og ég sagði áðan þá hafði ég 12. gr. til hliðsjónar. En þó svo að nauðsynlegt sé að fresta þátttökunni þá sé ég ekki beinlínis nauðsyn þess að hafa gildistökuákvæðið með þessum hætti. En það verður bara tekið á því í nánari umfjöllun um málið.