Fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna

Þriðjudaginn 07. desember 1999, kl. 23:59:38 (2506)

1999-12-07 23:59:38# 125. lþ. 37.5 fundur 206. mál: #A fullgilding samnings um framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna# þál. 6/125, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 125. lþ.

[23:59]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst alveg óþarfi af fulltrúum ríkisstjórnarmeirihlutans að gera lítið úr umsögnum lögreglustjóraembættisins í Reykjavík um þennan samning. Ég fer fram á það eitt að menn færi rök fyrir máli sínu en forðist sleggjudóma af því tagi sem fram kom í máli hv. þm. Hjálmars Jónssonar.