Könnun á hagkvæmni kalkþörungavinnslu

Miðvikudaginn 08. desember 1999, kl. 14:00:17 (2538)

1999-12-08 14:00:17# 125. lþ. 39.3 fundur 100. mál: #A könnun á hagkvæmni kalkþörungavinnslu# fsp. (til munnl.) frá sjútvrh., sjútvrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 39. fundur, 125. lþ.

[14:00]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Innan ráðuneytisins og á vegum stofnana ráðuneytisins hafa verið gerðar kostnaðaráætlanir á því hve mikið það mundi kosta að gera rannsóknir í þá veru sem hv. fyrirspyrjandi er að leita svara eftir. Hins vegar hefur ekki farið fram nein rannsókn á þessu efni enn þá en ég hef lagt á það áherslu við forstöðumenn stofnananna að á næsta ári fari fram forathugun á því hvort um sé að ræða hagkvæma kosti nýtingar fyrir okkur og að þær athuganir verði gerðar innan þeirra fjárhagslegu ramma sem stofnanirnar munu væntanlega búa við á næsta ári.