Könnun á hagkvæmni kalkþörungavinnslu

Miðvikudaginn 08. desember 1999, kl. 14:01:13 (2539)

1999-12-08 14:01:13# 125. lþ. 39.3 fundur 100. mál: #A könnun á hagkvæmni kalkþörungavinnslu# fsp. (til munnl.) frá sjútvrh., HjálmJ
[prenta uppsett í dálka] 39. fundur, 125. lþ.

[14:01]

Hjálmar Jónsson:

Herra forseti. Ég kem til að þakka hv. fyrirspyrjanda, Jóni Bjarnasyni, fyrir að hreyfa þessu máli og eins til að þakka hæstv. sjútvrh. fyrir svörin. Þetta er vissulega, eins og hv. fyrirspyrjandi segir, mikilvægt mál í vissum byggðum landsins og sjálfsagt að fara að kanna fleiri stoðir í byggðamálunum.

Ég lýsi stuðningi við þetta og vonast til að við getum á grundvelli svara hæstv. sjútvrh. hafið þessar rannsóknir eða byrjað á þeim á næsta ári.